Fjárlög 1992

57. fundur
Laugardaginn 21. desember 1991, kl. 02:42:00 (2383)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Enn þá eru 11 hv. þm. á mælendaskrá í því máli sem hér hefur verið á dagskrá í kvöld. Erfitt er að sjá hvernig hægt verður að ljúka umræðu um þetta mál en við ætlum að reyna að halda áfram og ná því að ljúka afgreiðslu fyrir jólahlé. Forseti getur ekki orðið við því að fresta fundinum á þessari stundu heldur mun hann freista þess að halda honum áfram eitthvað fram eftir til að reyna að hreinsa út af mælendaskránni og gefa hv. þm. tækifæri til að tjá sig um það mál sem er á dagskrá.