Fjárlög 1992

58. fundur
Laugardaginn 21. desember 1991, kl. 14:42:00 (2402)

     Finnur Ingólfsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir svarið en spyr þó enn: Ef ekki hefur verið fjallað um þetta í þingflokki þingmannsins hver tók þá ákvörðunina um að við stæðum þarna ekki með Kanadamönnum og Norðmönnum? Og um leið: Telur þingmaðurinn að sjónarmiðum Íslands hafi verið nógu vel komið á framfæri í þessum viðræðum með því að standa ekki með Norðmönnum, sem við eigum jú mesta samleið með í þessum efnum?