Fjárlög 1992

59. fundur
Sunnudaginn 22. desember 1991, kl. 02:43:00 (2478)

     Egill Jónsson :
     Virðulegi forseti. Sú tillaga sem hér er til atkvæðagreiðslu er efnislega sama eðlis og tillögur landbn. Alþingis sem voru afgreiddar svo sem kunnugt er samhljóða og byggjast að því er þessa tillögu varðar á samkomulagi fjögurra stjórnmálaflokka sem gert var árið 1989. Það liggur í eðli málsins að ég er þessari tillögu samþykkur og segi því já.