Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 88 . mál.


234. Nefndarálit



um frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Á undanförnum árum hafa formenn allsherjarnefnda efri og neðri deilda farið yfir allar umsóknir ásamt starfsmanni nefndadeildar og borið síðan tillögu til breytinga undir nefndir sínar.
     Nú var svipaður háttur hafður á. Formaður, tveir aðrir nefndarmenn og starfsmenn nefndadeildar fóru yfir allar umsóknir til að kanna hvort þær uppfylltu þau skilyrði sem allsherjarnefnd hefur sett fyrir veitingu ríkisfangs, sbr. þskj. 910 frá 112. löggjafarþingi.
     Við afgreiðslu á fyrra frumvarpinu um veitingu ríkisborgararéttar, sem jafnan er afgreitt á haustþingi, hefur nefndin haft að leiðarljósi fyrrgreindar reglur á þskj. 910. Umsóknir, sem ekki hljóta afgreiðslu nú, bíða þar til seinna frumvarpið er afgreitt á vorþingi, en þá koma allar óafgreiddar umsóknir aftur til skoðunar.
     Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 10. des. 1991.



Sólveig Pétursdóttir,

Anna Ólafsdóttir Björnsson.

Björn Bjarnason.


form., frsm.



Ey. Kon. Jónsson.

Ingi Björn Albertsson.

Jón Helgason.



Kristinn H. Gunnarsson.

Ólafur Þ. Þórðarson.

Össur Skarphéðinsson.