Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 176 . mál.


244. Nefndarálit



um frv. til l. um viðauka við lög nr. 39 15. maí 1990, um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins.

Frá sjávarútvegsnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Á fund nefndarinnar komu Benedikt Valsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Helgi Laxdal frá Vélstjórafélagi Íslands, Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands og Sveinn Hjörtur Hjartarson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna.
    Anna Ólafsdóttir Björnsson, fulltrúi Samtaka um kvennalista, hefur setið fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hún samþykk áliti nefndarinnar.
    Halldór Ásgrímsson og Vilhjálmur Egilsson voru fjarstaddir við afgreiðslu málsins.
    Nefndin mælir með að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 11. des. 1991.



Matthías Bjarnason,

Árni R. Árnason.

Guðmundur Hallvarðsson.


form., frsm.



Jóhann Ársælsson.

Stefán Guðmundsson.

Steingrímur J. Sigfússon.



Össur Skarphéðinsson.