Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 124 . mál.


288. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 40 15. maí 1990, um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins.

Frá meiri hluta sjávarútvegsnefndar (ÖS, ÁRÁ, GHall, VE, GAK).



    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
                  1. gr. laganna orðast svo:
                  Stofna skal sjóð er nefnist Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins. Hlutverk Hagræðingarsjóðs er að stuðla að aukinni hagkvæmni í útgerð, koma til aðstoðar byggðarlögum er standa höllum fæti vegna breytinga í útgerðarháttum og að efla hafrannsóknir.
                  Sjóðurinn skal stuðla að aukinni hagkvæmni í útgerð með því að laga stærð og afkastagetu fiskiskipastólsins að afrakstursgetu nytjastofna sjávar. Í þessu skyni skal sjóðurinn veita styrki til úreldingar fiskiskipa, enda sé tryggt að í stað hinna úreltu skipa komi ekki ný skip í fiskiskipaflotann eða að afkastageta flotans aukist með öðrum hætti.
                  Sjóðurinn skal koma til aðstoðar einstökum byggðarlögum með því að efla vinnslu sjávarfangs á þeim stöðum þar sem straumhvörf hafa orðið í atvinnulífi vegna sölu fiskiskips. Í því skyni getur sjóðurinn framselt tímabundið aflaheimildir, enda verði aflanum landað til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi.
    Við 3. gr. Greinin orðist svo:
                  5. gr. laganna orðast svo:
                  Hagræðingarsjóði skal á hverju fiskveiðiári úthlutað aflaheimildum er nema 12.000 þorskígildum í lestum talið. Skal þessum aflaheimildum skipt á þær botnfisktegundir sem sæta ákvæðum um leyfðan heildarafla og miðað við þau verðmætahlutföll er ráðherra ákveður. Skal allt að fjórðungi þessara aflaheimilda varið til eflingar fiskvinnslu í byggðarlögum er höllum fæti standa, sbr. 7. gr., en aflaheimildum sjóðsins skal að öðru leyti ráðstafa samkvæmt ákvæðum 6. gr. og 1. mgr. 8. gr. Taka skal tillit til aflaheimilda Hagræðingarsjóðs við ákvörðun aflamarks einstakra skipa.
    Við 4. gr. Greinin orðist svo:
                  6. gr. laganna orðast svo:
                  Hagræðingarsjóður skal við upphaf hvers fiskveiðiárs gefa útgerðum þeirra skipa, er aflahlutdeild hafa af botnfisktegundum sem sjóðurinn fær úthlutað skv. 5. gr. og ekki eru boðnar byggðarlögum skv. 7. gr., kost á að fá framseldar til sín aflaheimildir sjóðsins gegn endurgjaldi. Skal forkaupsrétturinn boðinn í hlutfalli við aflahlutdeild hvers skips af þeim tegundum sem sjóðurinn hefur forræði á. Endurgjald skal miðað við almennt gangverð á sams konar heimildum að mati ráðherra. Ráðherra getur með reglugerð ákveðið lágmark þeirra aflaheimilda sem forkaupsréttur samkvæmt þessari grein nær til.
    Á eftir 4. gr. komi ný grein er orðist svo:
                  Á eftir 6. gr. laganna koma tvær nýjar greinar svohljóðandi:
         
    
    (7. gr.)
                                                         Óski sveitarstjórn að fá forkaupsrétt að aflaheimildum sjóðsins skal umsókn þar að lútandi send Hagræðingarsjóði einum mánuði fyrir upphaf fiskveiðiárs. Skilyrði fyrir að sveitarstjórn fái forkaupsrétt að aflaheimildum sjóðsins er að sala fiskiskips eða fiskiskipa hafi valdið straumhvörfum í atvinnumálum viðkomandi byggðarlags þannig að fyrirsjáanleg sé veruleg fækkun starfa og byggðaröskun sé yfirvofandi. Sjóðstjórn skal taka afstöðu til óska sveitarstjórna um forkaupsrétt að fengnum tillögum Byggðastofnunar.
                            Neyti sveitarstjórn forkaupsréttar að tilteknum aflaheimildum samkvæmt ákvæðum 1. mgr. skulu aflaheimildirnar framseldar fiskiskipi eða fiskiskipum sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni gegn því skilyrði að aflanum verði landað til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Um endurgjald fyrir þær aflaheimildir, sem framseldar kunna að verða samkvæmt ákvæðum þessarar greinar, gilda ákvæði 3. málsl. 6. gr.
         
    
    (8. gr.)
                                                         Þær aflaheimildir, sem forkaupsréttur er ekki nýttur á skv. 6. og 7. gr. laga þessara, skal framselja hæstbjóðanda samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur í reglugerð.
                            Öllum tekjum Hagræðingarsjóðs af ráðstöfun aflaheimilda skal varið til að standa straum af kostnaði við rekstur Hafrannsóknastofnunarinnar. Sjóðurinn skal standa stofnuninni jafnharðan skil á innheimtum tekjum.
    Við 5. gr. Í stað orðanna „7. gr. laganna“ í fyrirsögn greinarinnar komi: 7. gr. laganna, er verður 9. gr.
    Við 6. gr. Í stað orðanna „8. gr. laganna“ í fyrirsögn greinarinnar komi: 8. gr. laganna, er verður 10. gr.
    Við 7. gr. Greinin orðist svo:
                  9. og 10. gr. laganna, svo og ákvæði til bráðabirgða II, falli brott.
    Við 8. gr. bætist nýr málsliður svohljóðandi: Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal fella meginmál þeirra inn í lög nr. 40/1990 og gefa þau út svo breytt.