Ferill 197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 197 . mál.


347. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 78 23. desember 1980, um jöfnunargjald, sbr. lög nr. 108/1990.

Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin ræddi á tveimur fundum frumvarp til laga um árlega framlengingu á jöfnunargjaldi sem hér hefur verið innheimt frá árinu 1979. Í frumvarpinu er lagt til að innheimta gjaldsins verði nú aðeins framlengd um sex mánuði. Jöfnunargjaldið nær til innflutnings á sams konar iðnaðarvörum og framleiddar eru hér á landi.
    Í umræðum um jöfnunargjaldið hefur verið dregið í efa að áframhaldandi gjaldtaka samræmist þeim fríverslunarsamningum sem Íslendingar eru aðilar að og einnig hefur verið bent á að rök skorti til að framlengja þessa innheimtu. Undirritaðir nefndarmenn eru á annarri skoðun. Þeir telja að enn séu gild rök til staðar fyrir innheimtu jöfnunargjaldsins.
    Í fyrsta lagi gætir enn áhrifa uppsafnaðs söluskatts. Í öðru lagi er staða íslensks iðnaðar með þeim hætti að hann þolir ekki versnandi samkeppnisstöðu. Í þriðja lagi kallar mikill viðskiptahalli á aðgerðir sem draga mega úr innflutningi. Þá mætti bæta við að hér er um mikilvægan tekjustofn að ræða fyrir ríkissjóð og að jöfnunargjaldið er mun geðfelldari tekjulind en margt það sem ríkisstjórnin seilist í þessa dagana.
    Meðan ekki sannast að um brot á samningum sé að ræða og helstu viðskiptaþjóðir okkar láta ógert að mótmæla þessari gjaldtöku er sjálfsagt að nýta þennan tekjustofn.
    Undirritaðir nefndarmenn telja því rétt að halda innheimtu jöfnunargjaldsins áfram. Verði það gert á annað borð er eðlilegt að sú tilhögun gildi allt árið. Frumvarp ríkisstjórnarinnar er hálfkák og betra að fella gjaldið niður strax en að standa uppi um mitt ár án slíks tekjustofns. Treysti stjórnvöld sér til að rökstyðja sex mánaða framlengingu er vandséð að ekki sé hægt að bæta sex mánuðum þar við. Því leggur 1. minni hluti til að lögin verði framlengd um eitt ár og að 1. gr. frumvarpsins verði breytt þannig að í stað „30. júní“ komi: 31. desember. Með þessari breytingu ættu 700–800 millj. kr. að renna í ríkissjóð.

Alþingi, 20. des. 1991.



Kristín Ástgeirsdóttir,

Halldór Ásgrímsson.

Steingrímur J. Sigfússon.


frsm.



Jóhannes Geir Sigurgeirsson.