Ferill 30. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 30 . mál.


377. Framhaldsnefndarálit



um frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1992.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin tók málið aftur til umfjöllunar er Alþingi kom saman eftir áramót, m.a. vegna þess að afgreiðsla fjárlaga kallar á breytingar á frumvarpinu. Nefndin kvaddi við þessa framhaldsumfjöllun gesti á sinn fund en þeir voru: Halldór Árnason og Jón Ragnar Blöndal frá fjármálaráðuneytinu, Ólafur Örn Ingólfsson frá Sambandi íslenskra viðskiptabanka, Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri, Bjarni Bragi Jónsson og Eiríkur Guðnason frá Seðlabanka Íslands, Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, Benedikt Davíðsson og Hrafn Magnússon frá Sambandi almennra lífeyrissjóða, Þorgeir Eyjólfsson frá Landssambandi lífeyrissjóða, Tryggvi Pálsson, bankastjóri Íslandsbanka, Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbanka, Ásmundur Stefánsson og Guðmundur Gylfi Guðmundsson frá Alþýðusambandi Íslands, Þórarinn V. Þórarinsson og Ólafur Hjálmarsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands, Þórleifur Jónsson frá Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja og Kristmundur Halldórsson frá iðnaðarráðuneytinu.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að gerðar verði nokkrar breytingar á frumvarpinu og einnig á tillögum meiri hlutans, þskj. 246. Nýju tillögurnar eru:
    Lagt er til að lántökuheimild fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, sbr. 1. gr. frumvarpsins, verði hækkuð um 400 m.kr. Upphæðin samsvarar auknum halla ríkissjóðs samkvæmt fjárlögum þessa árs frá því sem fjárlagafrumvarp gerði ráð fyrir.
    Vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að skuldbreyta lánveitingum atvinnutryggingardeildar Byggðastofnunar falla niður afborganir af veittum lánum deildarinnar á árinu 1992 og er því lagt til að heimild fjármálaráðherra til þess að endurlána henni verði aukin um 400 m.kr.
    Áætlað útstreymi umfram innstreymi á skyldusparnaðarreikningum ungmenna, sem eru í vörslu Byggingarsjóðs ríkisins, er 220 m.kr. á þessu ári og því er lagt til að lántökuheimild Byggingarsjóðs hækki um þá upphæð.
    Lagt er til að fjármálaráðherra verði heimilt að ábyrgjast allt að 85 m.kr. lántöku Skallagríms hf. til skuldbreytingar eldri lána, en fyrirtækið annast rekstur Akraborgarinnar.
    Vegna kaupa Rafmagnsveitna ríkisins á eignum Hitaveitu Seyðisfjarðar er lagt til að fjármálaráðherra verði heimilt að ábyrgjast allt að 76 m.kr. lántöku Rafmagnsveitnanna.
    Vegna þeirra breytinga, sem hér er lagt til að gerðar verði, er nauðsynlegt að hækka heimild til erlendrar lántöku um 1.181 m.kr. sem samsvarar aukinni lánsfjárþörf vegna breytinganna. Er lagt til að 6. tölul. brtt. á þskj. 246 verði breytt til samræmis við þetta.
    Í nefndaráliti fjárhags- og viðskiptanefndar efri deildar um frumvarp til lánsfjárlaga fyrir árið 1991 var tekið fram að hluta af lánsfjárheimild Byggðastofnunar ætti að nota til endurlána vegna viðgerða og endurbóta skipa innan lands. Nefndin ræddi við Guðmund Malmquist, forstjóra Byggðastofnunar, Þórleif Jónsson, framkvæmdastjóra Félags dráttarbrauta og skipasmiðja, og Kristmund Halldórsson, deildarstjóra fjármála- og rekstrarsviðs iðnaðarráðuneytisins, vegna þessa máls og framkvæmdar á þessu ári. Nefndin var fullvissuð um að þessu verkefni yrði sinnt eftir þörfum eins og verið hefði miðað við fjárhagsramma Byggðastofnunar samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til nú á sérstöku þingskjali, auk breytingartillagna á þskj. 246 og 276.

Alþingi, 9. jan. 1992.



Rannveig Guðmundsdóttir,

Sólveig Pétursdóttir.

Vilhjálmur Egilsson.


varaform., frsm.



Ingi Björn Albertsson.

Guðjón A. Kristjánsson.