Ferill 22. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 22 . mál.


492. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um viðskiptabanka, nr. 86 4. júlí 1985.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Við 4. gr.
         
    
    Í stað 2. efnismgr. komi þrjár nýjar málsgreinar er orðist svo:
                  Við útreikning á eiginfjárhlutfalli, sbr. 1. mgr., skal eigið fé samsett af tveimur þáttum, eiginfjárþætti A og eiginfjárþætti B, sbr. 3. og 4. mgr. Eiginfjárþáttur A skal nema að lágmarki helmingi eigin fjár.
                  Eiginfjárþáttur A telst vera:
                   
    Innborgað hlutafé.
                   
    Endurmatsreikningur samkvæmt verðbólgureikningsskilum.
                   
    Varasjóðir og annað eigið fé samkvæmt ársreikningi sem ekki fellur undir eiginfjárþátt B.
                   
    Afskriftareikningur vegna almennrar útlánaáhættu að hámarki 1,25% af áhættugrunni. Með afskriftareikningi útlána vegna almennrar útlánaáhættu er ekki átt við þau framlög, almenn og sérstök, sem lögð hafa verið til hliðar vegna útlánatapa og sérstaklega hafa verið metin eða talin eru hugsanleg á uppgjörsdegi með hliðsjón af tapreynslu í útlánastofninum og endurspegla rýrnun á verðmæti útlánanna.
                   
    Frá eiginfjárþætti A skal draga eigin hlutabréf, viðskiptavild og aðrar óáþreifanlegar eignir, svo og áfallnar ófærðar skattskuldbindingar sem rýra möguleika bankans til að mæta tapi.
                  Eiginfjárþáttur B telst vera víkjandi lán sem viðskiptabanki tekur gegn útgáfu sérstakrar skuldaviðurkenningar þar sem skýrt er kveðið á um að endurgreiðslutími lánsins sé eigi skemmri en fimm ár og að við gjaldþrot bankans eða slit hans fáist það endurgreitt á eftir öllum öðrum kröfum á hendur bankanum en endurgreiðslu hlutafjár. Þegar fimm ár eru eftir af lánstímanum skal lánið reiknast niður um 20% fyrir hvert ár sem líður af þessum fimm árum nema um sé að ræða lán sem greiðist niður með jöfnum afborgunum á tímabilinu. Heildarfjárhæð víkjandi lána má hæst nema 50% af eiginfjárþætti A.
         
    
    Í stað orðanna „greindir eru í 2. mgr.“ í lokamálsgrein komi: greindir eru í 3. og 4. mgr.
    Fyrri málsgrein ákvæðis til bráðabirgða orðist svo:
                  Viðskiptabanki skal uppfylla ákvæði um eigið fé skv. 4. gr. eigi síðar en í árslok 1992.