Ferill 25. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 25 . mál.


995. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 54/1974, um Þjóðhagsstofnun.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Umsagnir bárust frá Þjóðhagsstofnun, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Seðlabanka Íslands.
    Fram hefur komið í umsögnum Þjóðhagsstofnunar og Seðlabanka Íslands að hér sé um áhugavert mál að ræða og tekur nefndin undir það. Telur Þjóðhagsstofnun að landshlutauppgjör, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, gefi mun réttari mynd af þeim virðisauka sem myndast í hverjum landshluta en samanburður á útflutningstekjum á íbúa. Að ósk nefndarinnar gaf Þjóðhagsstofnun upp lauslegt mat á þeim kostnaði sem samþykkt frumvarpsins hefði í för með sér fyrir ríkissjóð. Bendir stofnunin á að sé byggt á núverandi vinnutilhögun við framleiðsluuppgjör þjóðhagsreikninga við gerð landshlutagreindra reikninga yrði kostnaðaraukinn verulegur. Þjóðhagsstofnun telur hagkvæmara að byggja á skýrslum um virðisaukaskatt og í framtíðinni stöðluðum ársreikningum fyrirtækja en kostnaðarauki yrði samt talsverður. Í umsögn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er á það bent að kjördæmaskipan þurfi ekki að vera heppilegasta skiptingin sem stuðst er við við gerð landshlutareikninga.
    Nefndin telur að þetta mál þurfi að kanna betur, sérstaklega með tilliti til samstarfs Þjóðhagsstofnunar og skattyfirvalda á þessu sviði. Hún leggur því til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 18. maí 1992.



Matthías Bjarnason,

Steingrímur J. Sigfússon.

Rannveig Guðmundsdóttir.


form., frsm.



Halldór Ásgrímsson.

Vilhjálmur Egilsson.

Ingi Björn Albertsson.



Kristín Ástgeirsdóttir.

Jóhannes Geir Sigurgeirsson.

Árni M. Mathiesen.