Ferill 421. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 421 . mál.


1039. Nefndarálit



um frv. til l. um almenna fullorðinsfræðslu.

Frá menntamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk um það umsagnir frá Kennarasambandi Íslands, Vinnuveitendasambandi Íslands, Iðntæknistofnun, Hinu íslenska kennarafélagi, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Vinnumálasambandi samvinnufélaga. Þá fékk nefndin á sinn fund til viðræðna um málið Guðnýju Helgadóttur, deildarstjóra fullorðinsfræðslu í menntamálaráðuneytinu, og Karl Kristjánsson, deildarsérfræðing í sama ráðuneyti.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Meginbreyting nefndarinnar varðar ákvæði 3. gr. frumvarpsins um fullorðinsfræðsluráðið. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að skipan ráðsins sé ákveðin í reglugerð. Nefndin telur hins vegar heppilegra að skipan þess sé tilgreind í lögunum og flytur um það tillögu. Þá er gerð breyting á endurskoðunarákvæði frumvarpsins og lagt til að lögin verði endurskoðuð eigi síðar en þremur árum eftir gildistöku þeirra en í frumvarpinu er miðað við fjögur ár. Einnig gerir nefndin breytingu á 9. gr. til að taka af öll tvímæli um efni hennar. Að lokum er lagfærð tilvísun í 6. gr. frumvarpsins og orðalagsbreyting gerð á 14. gr. þess.
    Tómas Ingi Olrich og Ólafur Þ. Þórðarson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 19. maí 1992.



Sigríður A. Þórðardóttir,

Rannveig Guðmundsdóttir.

Hjörleifur Guttormsson.


form., frsm.



Valgerður Sverrisdóttir.

Árni Johnsen.

Björn Bjarnason.



Kristín Ástgeirsdóttir.