Framhaldsfundir Alþingis

92. fundur
Mánudaginn 04. janúar 1993, kl. 13:33:52 (4246)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar þingmanna og óska honum og alþm. öllum, svo og starfsfólki, gleðilegs nýs árs og þakka samstarf á liðnu ári. Jafnframt býð ég þingmenn velkomna til starfa á nýju ári. Samkvæmt forsetabréfi sem hæstv. forsrh. hefur lesið hefjast nú fundastörf á Alþingi að nýju.