Varamaður tekur þingsæti

92. fundur
Mánudaginn 04. janúar 1993, kl. 13:35:02 (4247)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 31. des. 1992, stílað til forseta Alþingis:
    ,,Þar sem ég er á förum til Egyptalands og Jórdaníu í opinberum erindagerðum óska ég eftir því að varamaður minn, Svanhildur Árnadóttir, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst, Halldór Blöndal.``


    Svanhildur Árnadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.