Evrópskt efnahagssvæði

93. fundur
Þriðjudaginn 05. janúar 1993, kl. 16:30:50 (4298)

     Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Þau tíðindi gerðust fyrir jól að samkomulag varð um að það mætti líta á það að menn gætu tekið tvo daga í að verða fertugir. En ég vil spyrja að því, þar sem hæstv. utanrrh. mætir ekki í salinn, hvort enn séu áramót hjá þeim manni.