Evrópskt efnahagssvæði

93. fundur
Þriðjudaginn 05. janúar 1993, kl. 16:57:54 (4305)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Nú hafa fjórir hv. þm. óskað eftir að veita andsvar þannig að ræðutími í hvert sinn verður aðeins ein mínúta. (Gripið fram í.) Það verði þá tvær mínútur í fyrra skiptið sem hv. þm. óska eftir að taka til máls. Óski þeir eftir að veita andsvar öðru sinni hafa þeir eina mínútu til umráða. Þetta verða kannski ekki nákvæmlega 15 mínútur alls en forseti hefur ákveðið að hafa þetta svona.