Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Ég var ekki að gera því skóna að sú ríkisstjórn hefði endilega fallið þó hv. þm. hefði lýst því yfir að hann mundi ekki styðja hana gengi málið fram. Ég tel að innan þeirrar ríkisstjórnar, eins og til hennar var stofnað, hefði verið gríðarlegur þrýstingur innan stjórnarflokkana sem þá sátu að sitja áfram og menn hefðu frekar fallið frá málinu en að ríkisstjórnin félli. Ég tel því hv. þm. hefði kannski haft þetta í hendi sinni. Og þar sem hann hefur túlkað þetta mál sem eitt af allra stærstu málum þjóðarinnar þá tel ég að hann og hans félagar hefðu á þessum tveimur árum átt að láta á þetta reyna. En hann sat sem sagt og studdi nær allar gerðir þeirrar ríkisstjórnar meðan allur þessi undirbúningur fór fram. Það hefur komið hér fram í ræðum til að mynda allmargra hv. þm. Framsfl. að nánast öllum meginþáttum málsins hafi verið lokið þegar núv. hæstv. ríkisstjórn tók við stjórnartaumum í landinu.
Ég er í sjálfu sér ekki að efast um heilindi hv. þm. en ég tel að þarna hafi hann glatað því besta tækifæri sem hann hafði til að stöðva þetta mál ef vilji hans hefði verið ríkur og staðið til þess.