Evrópskt efnahagssvæði

94. fundur
Miðvikudaginn 06. janúar 1993, kl. 17:01:52 (4386)

     Vilhjálmur Egilsson :
    Virðulegi forseti. Ég tel að samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði sé afar mikið hagsmunamál fyrir íslenskt atvinnulíf og íslensku þjóðina í heild. Ég tel að þessi samningur færi okkur réttindi á erlendri grund langt umfram það sem við þurfum að láta af

hendi og styrki þess vegna fullveldi okkar og treysti okkar sjálfstæði. Ég segi því já.