Evrópskt efnahagssvæði

94. fundur
Miðvikudaginn 06. janúar 1993, kl. 17:02:31 (4387)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Það er tímaskekkja að vera að greiða atkvæði um þessi samningsdrög nú. Það er tímaskekkja að sækjast eftir aðild að miðstýrðu stofnanaveldi á meðan lýðræðisstraumar blása um Evrópu. Það er tímaskekkja að vera yfir höfuð að fjalla um þetta mál áður en þjóðinni hefur verið leyft að segja álit sitt á því. Það verður aldrei sátt um afgreiðslu þessa máls fyrr en þjóðaratkvæðagreiðsla hefur farið fram. Ég segi nei.