Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
:
Hæstv. forseti. Ég er sannfærð um það að bæði þingi og þjóð er ljóst að við Íslendingar komumst ekki hjá því að aðlaga okkur þeim breytingum sem nú eiga sér stað bæði í stjórnmálum og viðskiptum í okkar helstu viðskiptalöndum. Í þeim efnum eigum við tæpast nokkurt val. Við eigum hins vegar val um leiðir sem allar fela í sér ákveðna kosti og líka galla. Það er skoðun mín að miðað við þá stöðu sem nú er uppi í samskiptum þjóða sé eðlilegt að Ísland reyni að tryggja hagsmuni sína til frambúðar með samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
Umræðan hér á þingi á undanförnum dögum og vikum og reyndar mánuðum hefur stundum risið ansi hátt, en ég held að þegar frá líður og menn geta metið þennan samning af raunsæi, þá sjái þeir að í honum felst hvorki það allsherjarhjálpræði né sá framtíðarskelfir sem menn vilja vera láta.
Hitt er svo annað mál að enn er margt óljóst eða orkar tvímælis varðandi það frv. sem hér er til afgreiðslu. Ekki er enn komið lagaform á allar þær tilskipanir sem fylgja samningnum. Enn er vafi á því hvort frv., eins og það liggur hér fyrir, stenst gagnvart stjórnarskrá og þjóðinni var meinað að láta álit sitt í ljós í allsherjaratkvæðagreiðslu um þennan samning. Við þessar aðstæður verða stjórnarflokkarnir og stjórnarþingmennirnir að bera hina pólitísku á málinu einir. Ég mun því ekki greiða atkvæði.