Evrópskt efnahagssvæði

94. fundur
Miðvikudaginn 06. janúar 1993, kl. 17:24:56 (4400)

     Lára Margrét Ragnarsdóttir :
    Virðulegi forseti. Samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði mun að mínu mati stuðla að bættum ytri skilyrðum fyrir atvinnuvegina og jafna út þann aðstöðumun sem við búum við í dag. Því fagna ég þessu samkomulagi og segi já.