Evrópskt efnahagssvæði

94. fundur
Miðvikudaginn 06. janúar 1993, kl. 18:05:37 (4415)

     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Það hefur komið fram að það orkar tvímælis að ekki sé meira sagt að frv. þetta standist ákvæði stjórnarskrárinnar. Ég tel að þeir sem eru þeirrar skoðunar að svo sé hljóti að leggjast gegn því að þetta mál verði frekar til meðferðar í þinginu og því

mun ég greiða atkvæði gegn því að málið gangi til 3. umr.