Evrópskt efnahagssvæði

97. fundur
Föstudaginn 08. janúar 1993, kl. 16:58:36 (4503)

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég er sem kunnugt er sósíaldemókrat eða jafnaðarmaður að lífsskoðun og trúaður á hinar hægfara umbætur. Svar mitt við spurningu hæstv. þingmanns er því þetta: Við skulum stíga eitt skerf í einu. Fyrst skulum við samþykkja þennan samning. Fyrr en það er gert er ekkert um að tala að breyta honum sem ekki er í eitthvað annað.