Svavar Gestsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Mér finnst að hv. þm. rugli saman tveimur grundvallarhugtökum. Annað er þjóðernisleg viðhorf. Hitt er einangrunarstefna. Það er hægt að hafa í heiðri þjóðernisviðhorf án þess að aðhyllast einangrunarstefnu. Alþb. hefur aldrei aðhyllst einangrunarstefnu en við höfum hins vegar lagt áherslu á hinar þjóðlegu forsendur í okkar málflutningi, gengið býsna langt í því og oft lengra en aðrir flokkar og fyrir vikið verið talin íhaldssöm í okkar áherslum á ýmsum sviðum. En menn mega ekki rugla því saman annars vegar að leggja áherslu á þjóðlegar forsendur og hins vegar einangrunarstefnu. Við höfnum einangrunarstefnu og líka þeirri einangrunarstefnu sem einangrar okkur í Evrópu frá heiminum.