Evrópskt efnahagssvæði

98. fundur
Laugardaginn 09. janúar 1993, kl. 11:25:30 (4553)

     Hjörleifur Guttormsson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Fyrr á þessum fundi innti ég hæstv. forseta eftir því hver væru áform forseta varðandi þinghald í dag. Hæstv. forseti svaraði ekki þeirri spurningu minni áðan, ekki það ég tæki eftir, og því ítreka ég það, hver eru áformin varðandi fundahaldið á þessum degi, hversu lengi á að halda áfram á þessum laugardegi?