Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(um atkvæðagreiðslu)
:
Virðulegi forseti. Vegna þessara orða vil ég aðeins segja að EES-málið er meira rætt en öll önnur mál hér í þinginu fyrr og síðar eins og reyndar alkunna er. Þrautreynt er að mínu mati að það er ekki grundvöllur fyrir frekari sátt um málið en þegar er orðið. Því er að mínu mati ekki neinn tilgangur með sérstöku þinghléi til þess að hefja umræður á milli manna. Því hefur verið haldið fram að EES-málið væri ekki þingtækt í núverandi mynd. Þingið hefur nú með afstöðu sinni til frávísunartillögunnar tekið afstöðu til þeirrar málsástæðu og hafnað henni. Þess vegna finnst mér ekki vera ástæða til þinghlés eða sérstakra umræðna milli manna.