Evrópskt efnahagssvæði

100. fundur
Þriðjudaginn 12. janúar 1993, kl. 15:24:20 (4715)

     Ragnar Arnalds :
    Virðulegi forseti. Séð út frá hagsmunum Íslendinga er Evrópska efnahagssvæðið tilraun sem mistókst. Ágallar þessa samnings eru stærri og þyngri á metunum en kostirnir. Með lögfestingu mikils hluta laga Evrópubandalagsins er þessi samningur afdrifaríkt skref í átt til fullrar aðildar að Evrópubandalaginu. Ég tek ekki þátt í því að íslenska lýðveldið stigi slíkt skref. Ég segi nei.