Evrópskt efnahagssvæði

100. fundur
Þriðjudaginn 12. janúar 1993, kl. 15:46:42 (4728)

     Egill Jónsson :
    Virðulegi forseti. Það er grundvallaratriði við þennan samning að atvinnulífið í landinu fær nýja möguleika, nýja blóðgjöf. Sérstaklega á þetta við um sjávarútveg okkar Íslendinga. Minnimáttarkennd fyrir Íslands hönd í samskiptum við aðrar þjóðir er mér víðs fjarri. Ég segi já.