Evrópskt efnahagssvæði

100. fundur
Þriðjudaginn 12. janúar 1993, kl. 16:16:39 (4744)

     Karl Steinar Guðnason :
    Frú forseti. Ég tel að með samþykkt þessa samnings stigi Íslendingar skref til betri framtíðar, nýrra tækifæra fyrir íslenska launþega. Einangrun Íslendinga frá öðrum þjóðum færir okkur hins vegar fátækt og atvinnuleysi. Samþykkt þessa samnings styrkir sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar. Ég segi því já.