Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
(andsvar)
:
Frú forseti. Vegna fsp. hv. 1. þm. Austurl. um hvar komið væri vinnu við þróunarsjóð sjávarútvegsins sem tilkynnt var á síðasta ári að í undirbúningi væri þá er rétt að upplýsa að það mál er enn í vinnslu það er --- eins og ég veit að hv. þm. gerir sér grein fyrir --- allumfangsmikið mál og er í vinnslu og Alþingi verður að sjálfsögðu gerð grein fyrir niðurstöðu þegar henni er lokið og þá kemur til þess að afla lagaheimilda í samræmi við niðurstöðu þeirrar vinnu þegar þar að kemur. En ég lít ekki svo á að það hafi orðið neinn óeðlilegur dráttur á þeirri vinnu enn sem komið er.