Frú forseti. Það er rétt að taka það fram í þessu sambandi að þær hugmyndir sem uppi eru og kynntar hafa verið um stofnun þróunarsjóðs og gera þá ráð fyrir því að um það efni yrði sett sérstök löggjöf --- það er rétt að taka það fram að slík löggjöf yrði ekki hluti af fiskveiðistjórnunarlöggjöfinni þó niðurstaða þess máls tengist heildarniðurstöðu í því máli. Það er rétt sem fram kom hjá hv. þm. að samkvæmt bráðabirgðaákvæði fiskveiðistjórnunarlaganna átti endurskoðun laganna að vera lokið fyrir sl. áramót. Þetta er mjög
umfangsmikið verk og ástæðulaust að draga fjöður yfir það að það hefur verið mikið ágreiningsmál og reyndar skiptar skoðanir um það í öllum flokkum. En ég vænti þess að nú bráðlega ljúki sú nefnd, sem hefur haft forustu um þessa endurskoðun á vegum stjórnarflokkanna, sínu starfi og geti í beinu framhaldi af því kynnt sína niðurstöðu fyrir nefnd hagsmunaaðila og sjútvn. þingsins áður en málið verður fullbúið til þess að leggjast fyrir Alþingi. Það verður auðvitað ekki gert fyrr en það samráð hefur farið fram sem lögin kveða á um við hagsmunaaðila og sjútvn. þingsins. Og eins og formenn nefndarinnar hafa tjáð mér að málið standi þá á það að geta gerst nú mjög fljótlega því að nefndin er komin mjög langt í sínu verki og fyrst og fremst á hún eftir að ganga frá ýmsum minni háttar atriðum í sínu áliti áður en það verður endanlega kynnt. ( ÓRG: Var ekki formaðurinn að segja af sér?)
Það er rétt, ef ég má, frú forseti, vegna þess að hv. 8. þm. Reykn. kallaði hér fram í, að Magnús Gunnarsson óskaði eftir því vegna sérstakra anna í sínu starfi að verða leystur undan störfum formanns í nefndinni á síðustu stigum þannig að hann gæti gegnt sínu aðalstarfi en hann situr áfram í nefndinni en Vilhjálmur Egilsson alþm. hefur tekið við nefndarformennsku af Magnúsi.