Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Vaxtahækkun bankanna er á ábyrgð bankaráðanna sem hv. þm. á sæti í eins og kunnugt er. Ég vona að völvan sem þingmaðurinn nefndi, sem ég hef nú ekki rekið augun í, sé sú sama sem spáði því að ég færi í leynilegar viðræður við Delors á síðasta ári. Þær eru svo leynilegar að ég hef ekki frétt af þeim og ég hygg að þessi verðbólguspá völvunnar sé jafnvitlaus og sú spá. Ég yrði ekki undrandi á því þó einmitt verðbólgan gæti verið á bilinu rétt undir 3% á næsta ári og þá er það akkúrat verðbólgan sem hv. þm. Steingrímur Hermannsson telur vera æskilega.
Aðeins varðandi Suðurnesin þá held ég að enginn vafi sé á því að aðilar þar vissu nákvæmlega um það, skýrt var frá því með hvaða hætti þessar 500 millj kr. væru upp byggðar. Það væru 300 millj. kr. frá Aðalverktökum og 200 millj. kr. frá fyrirtækjum og sveitarfélögum á svæðinu. Ég hygg að aldrei hafi verið neinn vafi í þeim efnum.