Samningar við EB um fiskveiðimál

101. fundur
Miðvikudaginn 13. janúar 1993, kl. 18:22:20 (4814)

     Árni Johnsen :
    Virðulegi forseti. Formaður Framsfl., hv. þm. Steingrímur Hermannsson, opnaði boð um veiðiheimildir af hálfu Íslendinga á fundi með framkvæmdastjórn Efnahagsbandalagsins í Brussel 1990 sem þáv. hæstv. forsrh. Niðurstaða slunginna samningaviðræðna liggur nú fyrir og er ásættanleg. Ég segi já.