Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég náði ekki vegna tímaskorts að svara því atriði sérstaklega, en ég skal gera það núna. Ég ætla þó ekki að ræða um þróunarsjóðinn almennt, það gerði hæstv. sjútvrh. að nokkru hér fyrr í umræðunum en ég vil fyrir mitt leyti lýsa því yfir að ég tel það koma fyllilega til álita að þeir þættir sem ekki tengjast sjávarútveginum sérstaklega verði undanskildir vegna þess að hugsunin er sú að sjávarútvegurinn beri þann kostnað sem að honum snýr. Það er hugsun beggja stjórnarflokkanna. Þannig að það tel ég koma fyllilega til álita að þeim þætti, sem er að vísu ekki mjög stór í Atvinnutryggingarsjóðnum (Gripið fram í.) en miðað við heildardæmið sem eru milljarðar, að það dæmi verði skoðað alveg sérstaklega.
Varðandi Járnblendiverksmiðjuna þá skal ég ekki nú fjalla um hana. Það var fundið að því af hv. 1. þm. Austurl. að þar vantaði gögn. Ég hef sýnt honum viðbótargögn varðandi þau atriði og vænti þess að formaður efh.- og viðskn. komi þeim gögnum til annarra aðila. Ég vona að það mál hafi nokkuð skýrst og ég er þingmanninum sammála, þarna er um að ræða mjög stórt og viðamikið mál. Vandamálið er hins vegar það að erfitt er að færa fram algjörlega sannfærandi rök fyrir því að eftir að tveggja ára neyðartímabili, ef svo mætti kalla það, lýkur verði hinar efnahagslegu forsendur orðnar þær að sæmilegur grundvöllur sé fyrir verksmiðjuna.