Lánsfjárlög 1993 o.fl.

102. fundur
Fimmtudaginn 14. janúar 1993, kl. 13:53:17 (4834)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegur forseti. Það má öllum ljóst vera að járnblendiverksmiðjan á Grundartanga á við mikla rekstrarörðugleika að stríða. Margt bendir til að rétt sé að veita fyrirtækinu aðstoð til að fleyta því yfir erfiðleikana ef þeir reynast tímabundnir. En þar sem hv. efh.- og viðskn. hafa ekki borist nægilegar upplýsingar um stöðu og framtíðarhorfur fyrirtækisins og ekki gafst tími til að kanna málið að sinni tel ég rétt að sitja hjá.