Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
Virðulegi forseti. Ég minni á að aðstæður voru aðeins öðruvísi við umræður laust fyrir jól þar sem menn voru þá innan tveggja vikna frestsins sem nefndur er sérstaklega. Tillagan er byggð á grundvelli íslensku stjórnarskrárinnar og ég tel hana fullkomlega eðlilega. Á hinn bóginn held ég að það sé rétt sem hv. 9. þm. Reykv. segir, fyrst um þetta rísa umræður, að það þyrfti að vinna að greinargerð um málið fyrir forsætisnefndina þannig að við þurfum ekki að velta þessum þáttum fyrir okkur framvegis og hafa um það góða samstöðu.
Vegna orða hv. 1. þm. Norðurl. v. vil ég taka fram að það stendur ekki til af hálfu ríkisstjórnar að beita bráðabirgðalagavaldi. Ég veit ekki til þess að nokkurt slíkt dæmi sé uppi. Á hinn bóginn er það mitt mat að bráðabirgðalagarétturinn hafi ekki breyst með breytingu á þingsköpum. Ég hygg að ekki eigi að þurfa að vera lögfræðilegur ágreiningur um það. En ég vil taka það skýrt fram að það stendur ekki til af hálfu ríkisstjórnarinnar að beita heimildum bráðabirgðalaga í þinghléinu.