Virðulegur forseti. Svo er sagt að Mývatn muni vera það vatn á norðurhveli jarðar sem mest hefur verið rannsakað. Engu að síður hefur komið í ljós að ekki er nóg rannsakað og því standa nú yfir, eins og fram hefur komið í þessum umræðum, mjög umfangsmiklar rannsóknir á hugsanlegum áhrifum setflutninganna í vatninu og þeim áhrifum sem þetta nám og sú gryfjumyndun hefur í för með sér.
Vonir standa til að áfangaskýrsla um það efni liggi fyrir í næsta mánuði --- sennilega síðari hluta næsta mánaðar. Á þeirri skýrslu verður byggt þegar ákvörðun verður tekin um næstu skref í málinu og þá hugsanlega úttekt eða athugun af því tagi sem hér er nefnd.
En ég tek undir það sem hér hefur verið sagt af 1. flm., og raunar fleirum sem til máls hafa tekið, að það er brýnt að eyða þeirri óvissu sem fyrir hendi er varðandi framtíð kísilgúrnámsins í Mývatni. Um það eru mjög deildar meiningar og ætla ég ekki að hafa um það mörg orð hér, svo gjörkunnugt er málið hv. þm. En þar sýnist sitt hverjum og auðvitað er brýnt að fyrir liggi eins óyggjandi niðurstaða og hægt er að fá. Til þess hafa verið fengnir þeir bestu sérfræðingar og sú besta tækni sem við eigum völ á.
Annars vildi ég beina því til forseta að hér er um að ræða tillögu um atvinnuþróun í Mývatnssveit. Hér segir, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera úttekt á þróunarforsendum og möguleikum á nýsköpun í atvinnulífi í Mývatnssveit er falli að markmiðum um náttúruvernd á svæðinu.``
Mér sýnist, virðulegur forseti, enda þótt minnst sé á náttúruvernd í þeirri setningu sem ég las, að ekki sé sjálfgefið að þetta mál eigi að fara til umhvn. Raunar hef ég efasemdir um að málið eigi að fara til umhvn. vegna þess að hér er um að ræða úttekt á atvinnuþróun og möguleikum á nýsköpum í atvinnulífi. Auðvitað á allt slíkt hverju nafni sem nefnist og hvar á landinu sem er að falla að markmiðum um náttúru og umhverfisvernd. Ekkert frekar í Mývantssveit en annars staðar þó það sé mjög mikilvægt svæði. Öll nýsköpun í atvinnulífi og þróun í þeim efnum hlýtur og verður að taka mið af þeim forsendum. Ég hef miklar efasemdir um að þetta mál eigi að fara til hv. umhvn. enda þótt flm. eigi sæti þar vegna þess að hér er fyrst og fremst um atvinnumál að ræða.