Steingrímur Hermannsson :
Virðulegi forseti. Ég hef út af fyrir sig fáu við það að bæta sem hv. frsm. í þessari umræðu sagði um loforð ríkisstjórnarinnar. Þau liggja skjalfest fyrir. Þau liggja fyrir í þingskjölum m.a. En ég hlýt að þakka hæstv. forsrh. út af fyrir sig fyrir það að hann hefur staðfest það svo ekki verður um villst að það er alls ekki ætlun ríkisstjórnarinnar að standa við nein af þessum loforðum.
Hvernig gat hæstv. forsrh. heitið því á sínum tíma þegar hann kynnti efnahagsráðstafanir hér að 200 eða 300 millj. kr. kæmu frá sveitarfélögunum? Hvernig gat hann lofað því? Hvernig gat hann tilkynnt það í efnahagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar? Við skulum segja að hann hefði getað gert það fyrir hönd ríkisaðildar að Aðalverktökum. En það skildu allir þá yfirlýsingu svo að það kæmi úr ríkissjóði. Það væri tryggt fjármagn úr ríkissjóði í þessu skyni. Þá töluðu Suðurnesjamenn um að sjóðurinn mundi vera 1 milljarður því þeir ætluðust til að 500 millj. kæmu frá ríkissjóði.
Það þarf ekkert að tala um þetta meira. Það liggur ljóst fyrir og menn þurfa ekki að deila um það lengur að það var aldrei ætlunin að standa við þessi loforð, því miður.
En ýmsu fleiru hefur verið lofað og mig langar að nota tækifærið og spyrja: Hvað líður hástemmdum hugmyndum um að stofna til fríiðnaðarsvæðis í Keflavík og í tengslum við Keflavíkurflugvöll? Ég hygg að a.m.k. hæstv. iðnrh. ætti að geta upplýst það. Það var haldinn sérstakur fundur á Suðurnesjum og þetta var kynnt. Erlendur maður var hafður með og það voru miklar hugmyndir og gefin út skýrsla. Hvað líður þessu? Ég held að þessar hugmyndir séu nokkuð athyglisverðar og það væri mjög fróðlegt fyrir okkur og Suðurnesjamenn að vita hvað líður þeirri vinnu sem þá átti að setja af stað. Ég veit að það var skipuð einhver nefnd. Hvað hefur hún unnið? Hvenær má gera ráð fyrir að þarna komi niðurstöður?
Tíminn leyfir ekki að rekja fjölmargt fleira sem hefur verið nefnt í þessu sambandi. Kominn er tími til að ríkisstjórnin bretti upp ermar og fari að taka þátt í því að byggja upp atvinnulífið en ekki rífa það niður.