Virðulegi forseti. þetta er afskaplega undarleg og sérkennileg umræða. Menn segja hér að það sé
allt til í þingtíðindum sem hafi verið lofað í þessu máli og fullyrða síðan að eitthvað annað hafi verið sagt heldur en við höfum haldið fram. Reiði þá slíkir aðilar fram þau þingtíðindi sem sanna það. Þeir geta það ekki því að því var lofað, auðvitað eftir óformlegar viðræður við sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum og við fulltrúa Aðalverktaka, að þannig skyldi þetta framlag verða 500 millj. og því var lýst yfir í mínu svari að stjórn Aðalverktaka og sveitarfélög hafa samþykkt þessar 500 millj. þannig að eftir þessa umræður stendur, og það verður málshefjandi að sitja uppi með, að allt sem lofað var hefur verið efnt. Það er ekki hægt að færa fram neitt til þess að hrekja þá fullyrðingu. Það er ekki hægt að vera með fullyrðingar um að sumir hafi sagt og sumir hafi heyrt og einhver hafi gefið í skyn. Það er ekki frambærilegur málatilbúnaður hér á Alþingi. (Gripið fram í.) Það sem liggur fyrir er sú yfirlýsing sem gefin var um að varið yrði 500 millj. kr. Það liggur fyrir að sú yfirlýsing var gefin í framhaldi af fundum með fulltrúum Aðalverktaka, í framhaldi af fundum með sveitarfélagamönnum og það liggur fyrir að þeir lýstu því yfir að ef það kæmu 300 millj. frá Aðalverktökum, þá kæmu 200 millj. frá þeim. Allir hafa staðið við sitt og nú er verið að vinna að því að útfæra það með hvaða hætti þessir peningar eigi að streyma inn í atvinnulífið á Suðurnesjum og það liggur fyrir að þar eiga heimamenn að ráða mestu. Þannig að þessi skot á ríkisstjórnina voru alger feilskot.