Atvinnuþróun í Mývatnssveit

107. fundur
Fimmtudaginn 11. febrúar 1993, kl. 13:43:07 (4992)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Vegna þeirra orða sem hv. 5. þm. Suðurl. beindi til forseta skal upplýst að forseti hefur ekki úrskurðarvald að þessu leyti. Það er þingsins sjálfs að skera úr um til hvaða nefndar mál fara. Forseti bíður, eins og hv. 5. þm. Suðurl., eftir því að sú atkvæðagreiðsla geti farið fram en hefur að vísu ekki eins og hann hugsað sér að fara af fundi þótt einhver bið verði á því.