Dýrasjúkdómar

108. fundur
Föstudaginn 12. febrúar 1993, kl. 12:02:31 (5051)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég skal ekki um það segja hvort samkomulag hæstv. utanrrh. við hv. þm. sé eitthvað verra nú en það var áður en þessi mál eru að sjálfsögðu í höndum landbrn. Ég hygg að yfirlýsing mín sé alveg fullnægjandi. Það verður staðið eins fast á vörnum gegn sjúkdómum og kostur er og er á valdi yfirdýralæknis og framkvæmdarvaldsins.