Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Vegna þeirra ummæla sem hér hafa fallið um Bifreiðaskoðun ríkisins er rétt að taka fram enn á ný að ég hygg að það sé erfitt að mæla því mót að Bifreiðaskoðun Íslands hefur staðið mjög myndarlega að uppbyggingu þeirra skoðanastöðva sem byggðar hafa verið. Hitt er rétt og að mínu mati eðlileg gagnrýni að ýmsum finnst að þjónusta sem menn verða að sækja lögum samkvæmt að þessu leyti sé í mörgum tilvikum allt of fjarri heimahögum manna og m.a. vegna þeirrar gagnrýni tók dómsmrn. það upp til viðræðna við Bifreiðaskoðun Íslands að breyta ákvæði í samningi ráðuneytisins og fyrirtækisins um einkaréttinn, en í samningnum eins og hann var gerður 1988 var kveðið á um að fyrirtækið hefði óskoraðan einkarétt fram til loka ársins 2000. Þessum viðræðum lauk með því að fyrirtækið féllst á að gefa þennan einkarétt eftir og um næstu áramót verður frjálst að stofna fyrirtæki til þess að annast skoðun bifreiða á grundvelli tiltekinnar kröfu um það hvernig skoðunin fari fram og hvaða búnað slík fyrirtæki hafa. Ég geri ráð fyrir því að menn séu almennt sammála um að menn mega ekki slaka um of á kröfum í þessu efni því að á miklu veltur að við getum tryggt það að halda hér uppi ríkum kröfum varðandi búnað ökutækja í öryggisskyni. En ég vænti þess að með þessari breytingu skapist skilyrði fyrir einkaaðila að setja á fót fyrirtæki og veita þessa þjónustu og þannig verði unnt að koma til móts við þær eðlilegu athugasemdir sem fram hafa komið um að þjónustan sé í mörgum tilvikum of fjarlæg notandanum.
Ég geri einnig ráð fyrir því að á næsta ári verði byrjað að selja hluti ríkisins í Bfreiðaskoðun Íslands og eignarhaldi ríkisins verði þannig smám saman aflétt og upphaflegum markmiðum verði á þann veg náð.