Fullgilding á sjávarútvegssamningum milli Íslands og EB

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 13:46:19 (5110)

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
    Virðulegi forseti. Það er rétt til getið hjá hv. þm. Ríkisstjórn Íslands bíður átekta í málinu og vill sjá hverju fram vindur, bæði að því er varðar staðfestingu tvíhliða samningsins sem og EES-samningsins sjálfs.