Kjarasamningar

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 13:49:27 (5114)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Virðulegi forseti. Ég skil vel áhuga þingmannsins í þessum efnum. Ég vil aðeins segja það að ekki er efni til þess eða ástæður að hefja kjarasamningaviðræður í þessum sal á þessu stigi málsins.