Skyndilokanir á afréttum

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 13:51:23 (5119)

     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Spurning mín er nokkuð af öðrum toga og er henni beint til hæstv. umhvrh. En 3. febr. sl. lét hæstv. umhvrh. koma fram í kvöldfréttum að hann teldi æskilegt að beita skyndilokunum á afréttum. Hann benti í þessu sambandi á Hafrannsóknastofnun sem hafi vald til þess að loka veiðisvæðum og reka veiðiskipin út af.
    Mig langar til þess að spyrja hæstv. umhvrh. hvernig hann mundi framkvæma þetta ef hann hefði vald til.