Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason)
:
Virðulegi forseti. Mér þykir það ákaflega miður en ekki er hægt að skilja málflutning hv. þm. Valgerðar Sverrisdóttur með öðrum hætti en að hún telji nóg að gert í þessu. Ekki þurfi að friða fleiri svæði, ekki þurfi að loka fleiri svæðum fyrir beit en nú er gert. Ég er á annarri skoðun. Við þurfum að beita meiri beitarstjórnun og við þurfum að loka viðkvæmum svæðum fyrir ágangi þannig að þau geti náð sér og gróðurinn náð sér á strik. Við erum greinilega á öndverðum meiði um þetta. Hún heldur fram öðrum sjónarmiðum og það verður að vera hennar mál.