Vegáætlun 1993--1996

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 17:00:23 (5180)


     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Að ekki skuli vera búið að athuga vegarstæði og ákveða það sýnir það áhugaleysi sem verið hefur um þennan veg á liðnum árum. En það er verið að vinna í því núna. Talað er um að jarðgöng milli Vopnafjarðar og Héraðs kosti 2--3 milljarða kr. ef það er í nægilegri hæð til þess að koma að gagni.