Varamaður tekur þingsæti

113. fundur
Mánudaginn 22. febrúar 1993, kl. 13:33:01 (5331)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 22. febr. 1993:
    ,,Þar sem Pálmi Jónsson, 2. þm. Norðurl. v., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna sérstakra anna leyfi ég mér að ósk hans, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., séra Hjálmar Jónsson, prófastur á Sauðárkróki, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``

    Undir þetta bréf ritar Geir H. Haarde, formaður þingflokks Sjálfstfl.
    Hjálmar Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.