Kristín Ástgeirsdóttir
:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð um þessi mál sem hér eru á dagskrá, þ.e. mál 2--4. Ég ætla að leyfa mér að gera grein fyrir mínum fyrirvara við öll málin í senn og vona að það megi verða til þess að stytta mjög umræður hér. Þessi mál um Verðbréfaþing, verðbréfasjóði og verðbréfaviðskipti eru öll nátengd og þar af leiðandi tel ég eðlilegt að gera grein fyrir mínum fyrirvara í einu lagi.
Eins og sjá má skrifa ég undir nál. og brtt. við öll þessi þrjú mál með fyrirvara. Sá fyrirvari er reyndar ekki stór. Annars vegar er um það að ræða að við stöndum frammi fyrir því að hér er verið að aðlaga íslenskan markað að hinu Evrópska efnahagssvæði. Ýmislegt er tilkomið vegna þess að verið er að samræma og tekið er mið af dönskum lögum fyrst og fremst, það hefur verið stuðst við danskan lagabókstaf. Jafnframt hefur nefndin og embættismenn viðskrn. og aðrir þeir sem komið hafa að þessum málum unnið gríðarlega mikið að breytingum á frumvörpunum og mjög til bóta að því er ég tel. Ég er því hlynnt þessum málum en hefði kosið að þau hefðu komið til með öðrum hætti. Sem andstæðingur hins Evrópska efnahagssvæðis get ég ekki annað en haft fyrirvara við að verið sé að aðlaga íslenskar stofnanir og íslensk lög að hinu Evrópska efnahagssvæði með þeim hætti sem raun ber vitni.
Í öðru lagi lýtur minn fyrirvari að því að ég samþykki frv. með fyrirvara um að menn fari sér hægt við framkvæmd þessara mála. Þessar lagabreytingar sem hér eru á ferð tengjast gríðarlegum breytingum sem eru að verða á íslensku fjármagnskerfi og íslenskum fjármagnsmarkaði. Við erum að horfa á mikla opnun á markaðnum og mikla og öra þróun og mjög brýnt að varlega sé farið.
Það komu upp ýmis álitamál við meðferð þessara frumvarpa. Svo að ég nefni dæmi var töluvert rætt um hvort þeir aðilar sem standa að verðbréfaþingi skuli hafa einkaleyfi til slíks reksturs. Það var gagnrýnt af ýmsum aðilum sem að málinu komu en ég tel að þarna séum við að stíga rétt skref, alla vega til að byrja með, og eðlilegt að þessir aðilar hafi einkaleyfi því það hlýtur öllum að vera ljóst að íslenskur markaður stendur ekki undir fleiri en einni kauphöll af þessu tagi. Gagnrýnendur bentu m.a. á að þróun í þessum málum væri gríðarlega ör og að menn yrðu að passa sig á því að koma ekki í veg fyrir tengingar við erlenda markaði og annað slíkt. Það eru vissulega röksemdir sem vert er að hlusta á en við hljótum fyrst og fremst að þurfa að horfa á okkar íslenska markað og að það fyrirtæki sem verið er að þróa búi við þær aðstæður að ekki sé um einhverja ævintýramennsku að ræða í þessum mikilvægu málum.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara út í einstök atriði. Það væri hægt að ræða margt varðandi þetta mál, t.d. hlutverk bankaeftirlitsins og hvort verið sé að gefa því of mikið vægi en mín afstaða er sú að betra sé að fara varlega og eftirlitið sé með tryggara móti meðan við erum þróa áfram það kerfi sem menn hafa verið að byggja hér upp á undanförnum árum.
Minn fyrirvari lýtur sem sagt annars vegar að framkvæmdahlið málsins en í trausti þess að menn fari varlega mun ég styðja þetta mál, en eins og ég nefndi áðan lýtur fyrirvari minn einnig að því að hér er verið að vinna að aðlögun að Evrópska efnahagssvæðinu.