Afbrigði um dagskrármál

114. fundur
Þriðjudaginn 23. febrúar 1993, kl. 17:09:01 (5374)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Verður nú leitað afbrigða um þrjár brtt. þar sem of skammt er liðið frá útbýtingu þeirra. Það er brtt. á þskj. 653 við frv. til samkeppnislaga frá Kristínu Ástgeirsdóttur o.fl., brtt. á þskj. 654 við brtt. á þskj. 394, Verðbréfaþing Íslands, frá efh.- og viðskn. og brtt. á þskj. 655 við frv. til samkeppnislaga, einnig frá efh.- og viðskn. Það er of skammt liðið frá útbýtingu og verður því leitað afbrigða um allar þessar brtt. megi koma á dagskrá síðar á fundinum.