Tilkynning um utandagskrárumræðu

115. fundur
Miðvikudaginn 24. febrúar 1993, kl. 13:33:01 (5389)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna um utandagskrárumræðu sem fyrirhuguð er að lokinni afgreiðslu á þeim dagskrármálum sem hér liggja fyrir. Sú utandagskrárumræða fer fram að beiðni hv. 11. þm. Reykv. fyrir hönd stjórnarandstöðunnar og fjallar um heilbrigðismál.